bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

BMW E36 328i Touring - Seldur
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=69131
Page 1 of 1

Author:  gunnar [ Tue 25. Aug 2015 11:27 ]
Post subject:  BMW E36 328i Touring - Seldur

Loksins þegar þessi bíll er orðinn klár þá selur maður... :lol:

Er með til sölu BMW E36 328 Touring sem kom af færibandinu á því herrans ári 1995.

Ég kaupi þennan bíl fyrir þremur árum af honum JOGA á spjallinu. Eins og oft gerist með bílana hjá mér þá byrja ég að breyta hægt og rólega og svo enda ég í ruglinu og tek þá af númerum og fer alla leið með þá. Þessi hefur lítið verði á götunni síðustu þrjú ár. Það átti einungis að hreinsa smá ryð í skottinu á honum en fljótlega uppgvötaðist ryðgat á sílsa og fleira þannig það var farið í aðeins meiri og ítarlegri framkvæmdir.

Það er ss búið að skipta um sílsa á bílnum, ásamt því að mála langsamlega flesta panela.

Þetta er stórskemmtilegur bíll og ekki annað hægt að segja en sjálfsagt með heillegri E36 Touring bílum á landinu.

Helstu upplýsingar:

Bíllinn er ekinn 150.000 km.
Litur er Madeira Violet. Bíllinn er nýsprautaður að mestu í þeim lit.
Ljóst leður sem er í ansi góðu standi. Engar rifur eða slíkt. Brakar lítið í sætum
Læst 188mm drif orginal. Hlutfall er 3.07 að öllum líkindum.
Krókur er á bílnum og tengi sem virkar.

Myndir

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image


Helstu upplýsingar úr fæðingarvottorði:

Quote:
0037 - Finn ekkert um þetta. Líklegast leðurinnréttingin í bílnum (ljós)
0209 - 25% Limited Slip Differential
0302 - Theft Alarm with Remote Control
0320 - Script Name Plate
0411 - Electric Window Regulator Front/Rear
0423 - Velour Floor Mats
0428 - Warning Triangle/First Aid Kit
0438 - Precious (real) Wood Equipment
0441 - Smoker's Package
0498 - Mechanical Rear Headrest
0534 - Automatic Air Conditioning
0651 - Radio, BMW Reverse RDS


Helsta sem hefur verið gert við bílinn í minni eigu:
- Hvarfar hreinsaðir undan og túpur settar í staðinn.
- Vatnsdæla og vatnslás sett nýtt í. Notuð vatnsdæla með álspöðum en ekki plastið sem á til að brotna.
- KW lækkunargormar settir í sem fylgja með.
- Glænýr vatnskassi frá Stjörnublikk settur í fyrir innan við mánuði.
- Skipt um sílsa
- Heilmálun á flestum panelum.
- Dráttarbeisli tekið í gegn og málað og tengingar lagaðar.
- Hvít/rauð stefnuljós sett á.
- 17" E90 felgur keyptar


Helstu atriði sem þarf að laga:
- Loka frágangur eftir heilmálun, ég er að klára smáatriðin hægt og rólega.
- ABS skynjari er farinn.

Bíllinn er með endurskoðun núna útaf bremsuslöngum en ég er að skipta um það á næstu dögum og afhendist bíllinn með fulla skoðun.
Verðið á bílnum með E90 felgum er 750.000 kr.
Hægt er að semja um að fá bílinn afhendan á 15" orginal BMW álfelgum og þá lækkar verðmiðinn í 750.000

Gunnar - 690-6999

Author:  ///MR HUNG [ Tue 25. Aug 2015 14:36 ]
Post subject:  Re: BMW E36 328i Touring

Alltaf jafn flottur þessi :thup:

Author:  gunnar [ Tue 25. Aug 2015 15:00 ]
Post subject:  Re: BMW E36 328i Touring

Hann er það blessaður. Mun sakna þessa bíls án efa

Author:  Alpina [ Tue 25. Aug 2015 17:35 ]
Post subject:  Re: BMW E36 328i Touring

Já,, alveg MASSA flottur bíll

Author:  gunnar [ Wed 26. Aug 2015 10:17 ]
Post subject:  Re: BMW E36 328i Touring

Takk fyrir það.

Það er mikill áhugi á bílnum og margir haft samband.

Margir að pæla í skiptum, kannski ágætt að taka það fram að ég er alveg opinn fyrir skiptum ef það eru auðseljanlegir bílar sem koma upp í og peningur.

Hef ekki hug á að setja þennan upp í dýrari eða á fá einhver verkefni (bíla með vandamál) upp í, það endar bara á einn veg... Sama og þessi bíll gerði :lol:

Góðar stundir :thup:

Author:  ///MR HUNG [ Wed 26. Aug 2015 15:04 ]
Post subject:  Re: BMW E36 328i Touring

Skil ekki enn í dag hvers vegna ég seldi hann á sínum tíma :hmm:

Author:  gunnar [ Mon 31. Aug 2015 11:04 ]
Post subject:  Re: BMW E36 328i Touring

Enn til, skoða skipti á einhverju skynsömu.

Author:  JOGA [ Tue 01. Sep 2015 12:13 ]
Post subject:  Re: BMW E36 328i Touring

///MR HUNG wrote:
Skil ekki enn í dag hvers vegna ég seldi hann á sínum tíma :hmm:


Segi það sama :) .
Mjög skemmtilegur og flottur bíll.

Author:  srr [ Tue 01. Sep 2015 14:46 ]
Post subject:  Re: BMW E36 328i Touring

JOGA wrote:
///MR HUNG wrote:
Skil ekki enn í dag hvers vegna ég seldi hann á sínum tíma :hmm:


Segi það sama :) .
Mjög skemmtilegur og flottur bíll.

Skil ekkert í ykkur. E36 328 touring.....þetta er æðislegt 8)

Author:  ///MR HUNG [ Tue 01. Sep 2015 16:47 ]
Post subject:  Re: BMW E36 328i Touring

srr wrote:
JOGA wrote:
///MR HUNG wrote:
Skil ekki enn í dag hvers vegna ég seldi hann á sínum tíma :hmm:


Segi það sama :) .
Mjög skemmtilegur og flottur bíll.

Skil ekkert í ykkur. E36 328 touring.....þetta er æðislegt 8)

Ég átti hann nú 2002....það er svipað og þetta væri E91 í dag :lol:

Author:  Zed III [ Tue 01. Sep 2015 17:19 ]
Post subject:  Re: BMW E36 328i Touring

Svakalega flott innrétting.

Author:  D.Árna [ Wed 02. Sep 2015 09:03 ]
Post subject:  Re: BMW E36 328i Touring

E90 felgur eru feitt að virka undir E36,,,

Author:  JOGA [ Thu 03. Sep 2015 11:50 ]
Post subject:  Re: BMW E36 328i Touring

Hann var líka að virka á style 32 :thup:

Image
Image

Author:  gunnar [ Mon 12. Oct 2015 11:46 ]
Post subject:  Re: BMW E36 328i Touring

Ætla að prufa að slá 100.000 kall af þessum tímabundið.

Ef hann selst núna þá er það flott, annars setur maður hann bara inn í vetur.. :thup:

Skoða skipti á skynsamlegu dóti.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/